Stefna
Jafnlaunastefna og jafréttisáætlun
Tilgangur og markmið
Jafnlaunakerfi Glansþrif byggir á staðli ÍST85:2012 á grundvelli 7. gr. laga nr. 150/2020 um jafnlaunavottun. Tilgangur og markmið jafnréttisstefnu Glansþrif er að stuðla að jafnrétti allra kynja í samræmi við lög um jafna stöðu, jafnan rétt þeirra og að fylgja þeirri meginreglu að öllum kynjum séu greidd jöfn laun og að þau njóti sömu kjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf.
Umfang
Stefnan nær til alls starfsfólks Glansþrif.
Jafnlaunastefna og jafnréttisáætlun Glansþrif.
Glansþrif leggur áherslu á jafnrétti kynjanna og að nýta til jafns styrkleika alls starfsfólks þannig að hæfileikar og færni alls mannauðs njóti sín sem best og er það skjalfest með stefnu þessari. Stefna Glansþrif er að vera vinnustaður þar sem öll eru metin að verðleikum eftir hæfni og frammistöðu og að öll hafi jöfn tækifæri til þess að axla ábyrgð og sinna verkefnum óháð kyni.
Ytri þættir sem geta haft áhrif á launasetningu eru gildandi kjarasamningar, lög og reglur, launaþróun á markaði, þar undir er einnig litið til starfsþekkingar, reynslu og menntunar.
Glansþrif fylgir lögum, reglum og samningum sem snerta jafnréttismál og gilda á hverjum tíma.